6 Comments

  1. No_nukes_at_all on

    þykist vita að hérna er mikið af tölvuleikjaspilurum, forvitinn hvað ykkur finnst um þessa pælingu hans Tóta ekki-Tölvukalls. ?

  2. Held að hann sé að skeyta saman tveimur hlutum. Það að etja einhverja tölvuleikja af kappi er bara besta mál að mínu mati, og það er alveg hægt að gera það án þess að vera tölvuleikjafíkill. Hvort það sé kallað “íþrótt” eða ekki skiptir mig litlu máli svo sem.

    Held það sé rétt hjá honum að allt of margir foreldrar taki tölvuleikjafíkn barna sinna alls ekki nógu alvarlega, og að það sé mikið um það sem hann kallar “fyrir fram afsakanir”, en ég held að það eitt að vera með rafíþróttadeild sé ekki þess valdandi, eða einu sinni að gera vandamálið verra.

  3. CerberusMulti on

    Ég spyr nú bara hver þessi trúður sé.

    En þessi heimskulega “pæling” hans dæmir sig sjálf, að flokka alla þá sem spila og keppa í rafíþróttum sem “spilafílka” segir allt sem segja þarf um þennan trúð.
    Auðvitað eru aðilar sem eru í rafíþróttum og fela spilafíkn á bakvið það, en að reyna draga þetta niður og alhæfa svona er bara bull.

    Hann ætti nú að líta í aðrar íþróttagreinar. Mörg börn eru undir miklu álagi, andlega og líkamlega, þegar kemur að æfingum og keppnum. Þjálfarar og foreldrar setja óeðlilega mikla pressu á árangur.

    Ætli hann flokki ekki skák sem “ekki íþrótt” líka.

  4. Sko vandamálið er að foreldrar eru ekki að skapa neinn ramma í kringum skjánotkun og aðra tómstund og afþreyingu.

    Líka vandamál sem ég hef séð hjá yngri frændum mínum að tölvunotkun og rútínuleysi er að valda því að þeir hætti í tómstundum.

  5. Thor_kills on

    Er mikill spilari sjálfur en er svo sem sammála því að koma fram við rafíþróttir eins og alvöru íþróttir er ekki alveg málið.

  6. Einn daginn munum við eiga fullorðins samræður af ábyrgð um fíkn og dópamím; en það verður að öllum líkindum ekki fyrir tilstillan hans Þórarinns eða annara “áhrifavalda” sem ég hef aldrei heyrt um fyrr en DV veitir þeim athygli.

    Spurningin um hvað sé íþrótt, og hvað er list, getur verið mjög áhugaverð í samhengi við tölvuleiki. Sem dæmi um áhugaverðar umræður á þessu svæði ætla ég að deila [podcast samtali við Thi Nguyen](https://www.youtube.com/watch?v=H0EhjQDHaAw) þar sem hann ræðir um leiki, list, og lífið og (að mig minnir) hvernig leikir sumra eru vinna annara, ef ekki þjáning, og hvernig það getur verið.

Leave A Reply