Samenspender informieren ihre Angehörigen, damit es nicht zu einem „Unfall“ kommt – Indikator

https://www.visir.is/g/20242624320d/saedisgjafar-tilkynni-thad-fjolskyldu-sinni-svo-ekki-verdi-slys-

Von birkir

1 Comment

  1. fyrst tilefni gefst til að tala um lífsiðfræðileg málefni má líka minnast á annað tækifæri til að tala við fjölskylduna um skemmtileg málefni; að óháð skráningu í líffæragjöf eiga fjölskyldur oft mjög erfitt með að taka þá ákvörðun, *nema viðkomandi aðili hafi einhvern tímann áður sagt fjölskyldu sinni að hann myndi vilja gefa líffæri sín*

    vel yfir 90% íslendinga eru fylgjandi því að gefa líffæri sín eftir andlát ef möguleiki er á, en [fjölskyldur hafa einungis í 60% tilfella samþykkt það](https://www.laeknabladid.is/2005/05/nr/1996) – í nánast öllum tilfellum þar sem ekki fékkst leyfi var vegna þess að fjölskyldan treysti sér ekki til þess að taka þá ákvörðun þar sem vilji einstaklingsins lá ekki fyrir

    og já, það er nóg að segja fjölskyldu sinni á Íslandi, því hér er svokallað veikt ætlað samþykki, sem þýðir að við gerum ráð fyrir því að fólk sé hlynnt eigin líffæragjöf *en fjölskylda eða aðstandendur taka alltaf lokaákvörðun um það*

    svo talið endilega við fjölskyldu ykkar um allar tegundir frumna sem þið viljið deila (læknisfræðilega) með öðrum

Leave A Reply