„Ich werde nicht mehr schweigen“ – Indikator

https://www.visir.is/g/20242599647d/-eg-aetla-ekki-ad-thegja-lengur-

Von jeedudamia

5 Comments

  1. Both_Bumblebee_7529 on

    Þetta er ekki góð fréttamennska. Kona sem fékk bæði eina, en samt tvær, bólusetningar og þrjú Covid smit flímir við langvarandi óútskýrðan heilsubrest. Af hverju er það bara bólusetningunni að kenna en ekki Covid smitunum sjálfum?

    „Það er nákvæmlega **ekkert sem útskýrir minn heilsubrest annað en þessi eina sprauta** sem ég fékk þann 25. febrúar árið 2021,“ segir Sigrún Ólöf Karlsdóttir.

    “Hún var áður heilsuhraust og í fullri vinnu en eftir **tvær bólusetningar** og **þrjú Covid-smit** hefur líf hennar tekið algjöra kollsteypu að hennar sögn.”

    “Þetta var **eina** skiptið sem hún var bólusett. ”

  2. Morvenn-Vahl on

    Langar nú ekki að gera lítið úr veikindum hennar en staðreyndin er að COVID-19 getur haft langvarandi áhrif fyrir ákveðna hópa óháð bólusetningum. Ef eitthvað þá er spurning hvort hún hefði ekki verið á alvarlegri stað ef hún hefði ekki fengið bólusetninguna.

    Hins vegar má alveg viðurkenna að heilbrigðiskerfið hafi ekki tekið nógu vel á mörgum sem eru með svokallað Long COVID út af fámennum mannskap og fjársveltu kerfi. Það er samt allt annar handleggur.

    Ég skil aftur á móti reiði hennar. Þegar fólki líður illa og finnur engin svör þá er mjög auðvelt að læsa sig á einn hlut og líta á það sem orsök alls ills. Hins vegar efast ég um að reiði hennar beinist í rétta átt.

  3. Blablabene on

    Þetta COVID tímabil var eitthvað það allra furðulegasta. Veira sem okkur var sagt að hafi komið úr matarmörkuðum í Wuhan, en reyndist svo hafa sloppið úr tilraunastofu.

    Og allskonar bóluefni sem sprautað var í fólk. Fólki sagt að það væri hættulaust, en var það alls ekki.

    Þessi kafli í mannkynssögunni verður grandskoðaður þegar ákveðinn tími verður liðinn og fólk áttar sig á því hvað hafi raunverulega gerst.

    Minn hugur og samúð liggur hjá þessu fólki sem treysti, hlustaði og fylgdi fyrirmælum. Og lenti í hræðilegum afleiðingum í kjölfarið.

  4. > Af því að maður vissi ekkert hvað var í þessu bóluefni, maður vissi ekkert hvað það væri verið að gefa manni.

    Las hún ekki upplýsingarnar um bóluefnið sem er opið fyrir alla? Það er enginn að fela innihaldið.

    > Hún er meðal annars með GGO (ground glass) skemmdir í báðum lungum og hefur verið tjáð að þær sé ekki hægt að laga.

    > „Hvort hún hafi komið út frá sprautunni,covid sýkingum, öllum lyfjunum sem ég hef verið sett á frá því að ég var bólusett, það ég veit það ekki

    GGO er vel þekkt afleiðing eftir Covid sýkingu

    https://www.health.com/condition/infectious-diseases/coronavirus/ground-glass-opacities-covid-19

    https://pubs.rsna.org/doi/10.1148/radiol.231502

    > how does this new information help create a clearer picture of the post-COVID-19 condition? First, the authors identified that chest CT ground-glass opacity (GGO) was the most reported nonfibrotic abnormality (ranging from 2.4% to 67.7% in 11 studies, with a pooled prevalence of 23.8% [95% CI: 13.0, 39.4]).

    Hins vegar er GGO eftir bólusetningu einstaklega sjaldgæf aukaverkun og líklega eru 99.9%-100% af GGO tilfellum á Íslandi vegna Covid sýkinga.

  5. KlM-J0NG-UN on

    Ég drakk í fyrradag vatnsglas og í dag er ég með hita. Ég ætla ekki að þegja lengur. Af hverju vilja fréttamenn ekki ræða við mig um þetta hættulega vatn??

Leave A Reply