Die Isländer wollen die Jobs nicht annehmen
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/05/islendingar_vilja_ekki_thiggja_storfin/?utm_medium=Social&utm_campaign=mbl.is&utm_source=Facebook&fbclid=IwAR0nxHAlmpaZ3Zg5Ri6cRjFAuZfniAUN8-BCGVbBjI4mdmp_Jv6n2bQfcNU_aem_AWkYCYNXdlpdarecVD-l2koYmvZdNrnX3ipU_dEuI_X9ut5HeahHHDwac6rd-TIKXilcz9SQJ5y2rrIpRgbNTARX#Echobox=1712310478
Von stofugluggi
5 Comments
..eða bara bjóða betur?
Áhugavert að ekkert er minnst á launin í þessari grein…
Edit:
> Verktaki sem Morgunblaðið ræddi við hafði sömu sögu að segja. Hann væri með um 150 manns í vinnu við líkamleg störf en í þeim hópi væri ekki einasti Íslendingur. „Ég þoli ekki þetta aumingjauppeldi sem er í dag. Menn láta sig hverfa í veikindaleyfi og kalla það kulnun. Það er því orðið erfitt að fá fólk í vinnu. Ég er með marga útlendinga því að það er ekkert væl þar,“ sagði verktakinn.
Lol, hvílík ráðgáta hvers vegna þessi indælis einstaklingur finnur ekki starfsmenn sem hafa aðra valmöguleika en að vinna fyrir hann.
mesta boomer viðtal sem ég hef séð.
Erum við bara að flytja inn alla ruglræðu sem við getum mögulega fundið í bandarískum kúltúr?
Fólk vill vinna í sínum verkefnum, ekki í því að auðga þriðja aðila. Fólk er tilbúið að auðga þriðja aðila ef sú vinna auðveldar þeim að vinna í sínum verkefnum. Í mörgum tilfellum gerir vinna það ekki, heldur tekur yfir allt líf fólks, heimtar yfirvinnu umfram átta tíma og bíður ekki upp á neina framtíðarmöguleika.
Ef þú getur ekki fengið fólk til að vinna fyrir þig, þá ert þú vandamálið. Enginn á að taka á sig ömurleg lífsgæði til að niðurgreiða reksturinn á fyrirtækinu þínu. Þú þarft bara að fara að vinna fyrir fyrirtæki annara sem geta staðið undir eigin rekstri ef fyrirtækið þitt getur ekki greitt mannsæmandi laun – og það er ekkert að því… er það?
Úff Morgunblaðið.
Væri jafnvel frekar til í að fá enn eina fréttina með mynd af [Þorsteini Má](https://is.wikipedia.org/wiki/%C3%81rvakur#Eignarhald) að þykjast vera verkamaður en að sjá þetta.