Ich bevorzuge den Kauf inländischer Produkte gegenüber ausländischer Produktion (CO2-Fußabdruck/Lebensmittelsicherheit). Was ist deine Meinung?
https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2024/08/08/kjuklingabringurnar_yrdu_43_prosent_odyrari/
Kjúklingabringurnar yrðu 43% ódýrari
byu/ParticularFlamingo inIceland
Von ParticularFlamingo
14 Comments
Context?
Var eitthvað í fréttum tengt þessu?
Ég leyfi mér nú að efast um þessa fullyrðingu.
Afhverju EKKI að kjósa framsókn.
>kolefnisspor
Ég veit ekki með kjúklinginn, en ég reiknaði það eitt sinn út með gögnum frá Nýsjálensku og Íslensku bændasamtökunum að innflutt Nýsjálenskt lambakjöt er með 1/3ja lægra kolefnisfótspor á íslandi en Íslenskt.
Íslenskur landbúnaður er brjálæðsilega óskilvirkur. Flutningurinn á mat er mjög lítill hluti af kolefnisfótsporinu m.v framleiðsluna á honum, sérstakelga þegar kemur að kjöti. Og framleiðsla á matvælum á Íslandi krefst þess að bókstaflega allt input í ferlið sé innflutt.
Það kæmi mér ekki á óvart að innfluttur kjúklingur frá löndum með skilvirkari landbúnað sé með minna kolefnisfótspor en innlendur kjúklingur. Það gildir amk um lambakjötið. En ég nenni ekki að grafa mig ofan í það sem stendur.
>fæðuöryggi
Til þess að búa til kjúklingakjöt þarf að gefa kjúklingum að éta. Fyrir hvert kg af kjúklingakjöti sem dýrið framleiðir étur það á bilinu 1.5-1.9 kg af fóðri (m.v fljótt gúggl). Hátt í 100% ef ekki 100% af þessu fóðri er innflutt af því að það er ekki hægt að rækta það á Íslandi.
Hvernig stuðlar það að fæðuöryggi að flytja inn 1.5-1.9kg af mat til þess að búa til 1kg af mat?
Ég kýs frekar að borða en versla íslenskar vörur sem ég hef ekki efni á
Hvað myndi kílóið kosta ef við værum með €?
Kaupi frekar erlent eftir þessa augljósu spillingu Kaupfélag Skagfirðinga og MS.
Þetta minnir á spillingu í einhverju 4 heims ríki.
[búvörulögin](https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/07/10/vid_verdum_ad_stodva_svona_rugl/)
” Ný búvörulög voru samþykkt í mars. Þau fela meðal annars í sér undanþágu afurðastöðva í kjötiðnaði frá samkeppnislögum sem gerir þeim auðveldara fyrir að sameinast ”
Er þetta bara alvöru?
Ég er orðinn svo svartsýnn að það eina sem ég les úr þessu er að matvöruverslanir auki gróðann sinn á innfluttum kjúklingabringum um 43% ef tollarnir yrðu teknir af þeim.
”kolefnisspor” lol
Ég er neytandi og ég kaupi það sem best fer mínum smekki óháð koletnisspori matarins. Kolefnissporið mitt verður ekki borið saman við Amazon.
þú meinar 43% hagnaður af kjúklingabringum fyrir verslanir.
Þessi 43% verðmunur rennur væntanlega í sjóði ríkisins, sem notar peninginn í eitthvað (mis)gáfulegt sem Íslendingar njóta (mis)mikinn ávinning af. S.s. heilbrigðisþjónustu, menntun landsmanna, stuðning við þau sem minna mega sín, vegakerfi, osfrv.
Ef við afnemum tolla þá mun ríkið bara þurfa að bæta sér upp tekjutapið á einhvern. Á einn eða annan máta mun almenningur hvort sem er borga brúsann úr eigin vasa.
Lausn (eins og þessi) sem horfir aðeins á aðra hlið málsins er bara lýðsskrum og til einskis gagns.
Auk þess eru mestar líkur á að verslanakeðjurnar myndu bara hækka álagninguna og stinga mismuninum í vasann. Annað eins hefur nú gerst á Íslandi. Hefur t.d. nokkur orðið var við að lækkun á heimsmarkaðsverði olíu hafi einhverntímann skilað sér í vasa íslenskra neytenda?
Fæðuöryggi er svo mikið bs.
Ef við getum ekki keypt inn nauðsynjar til Íslands vegna einhverra ástæðna þá þarf okkur landsbúum að fækka afur nærri 100k.
Það yrði engin olía, áburður, fóður eða varahlutir til að halda þessu gangandi.
Kjúklingur er ódýr matur víða annars staðar, held ekki að í mörgum löndum séu veitingastaðir að bjóða upp á valkosti með nautakjöti og kjúklingakjöti á sama verði. Ég vel alltaf nautakjötið.