„Sie ist einfach eine ehrliche Rassistin“

https://www.visir.is/g/20242598643d/-hun-er-bara-heidar-legur-ras-isti-

Von numix90

3 Comments

  1. Það mikilvæga hérna er ekki að manneskja sem reglulega lætur frá sér rasísk ummæli hafi gert það aftur. Það mikilvæga er heldur ekki að það er hópur fólks til hér á landi sem ber svo sterkar neivkæðar tilfinningar til fólks vegna útlits þeirra að það leyfir sér að sleppa allri gagnrýnni hugsun fyrir tilifinningarlega fróun.

    Það mikilvæga hérna er að fjölmiðlar okkar eru ekki gagnrýnir heldur gefa rasistu sömu drottningarviðtöl og ráðafólk okkar fær. Það er virkilega eitthvað til að hafa áhyggjur af fyrir alla af því um leið og fólk sem lítur öðruvísi út er gert að ástæðu vandamála sem það er ekki raunveruleg ástæða fyrir þá er ekki hægt að leysa þau vandamál.

    Efnahagsmál hérna munu ekki lagast jafnvel þó að allir hælisleitendur og innflytjendur verði fluttir til Rúanda af því rót efnahagsvandamála okkar eru leiðtogar okkar og stefna þeirra. Það að kenna öðrum en valdhöfum um aðgerðir valdhafa er ekki ávísun á breytingar.

  2. MoistiestNord on

    “Það er mjög dapurlegt að fylgjast með uppgangi öfgaafla um allan heim. Við erum að sjá mjög svipaðan trommutakt og var fyrir seinni heimsstyrjöld þar sem stjórnmálamenn eru að selja ótta til að kaupa sér atkvæði.“

    Sælir, það er bara verið að stefna í helförin afþví að það er umræða í gangi um hvort það sé virkilega það góð hugmynd að hafa svona opin landamæri.

    Cant make this shit up.

Leave A Reply