Ausbruch wahrscheinlich in den kommenden Wochen und sogar innerhalb der Stadt – Vísir

https://www.visir.is/g/20242597615d/eldgos-liklegt-a-allra-naestu-vikum-og-jafnvel-innan-baejarins

Von birkir

2 Comments

  1. # [Kvikusöfnun undir Svartsengi nokkuð stöðug síðustu tvær vikur](https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardhraeringar-grindavik)

    #### Líkur á öðru kvikuhlaupi og/eða eldgosi á næstu þremur til fjórum vikum

    ##### 16. júlí kl. 15:15

    – **Líkanreikningar áætla að um 13 milljónir rúmmetrar af kviku hafi bæst við í kvikuhólfið undir Svartsengi**

    – **Í dag er magn kviku sem bæst hefur við komið að lægri mörkum þess magns kviku sem talið er þurfa að bætast við til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi**

    – **Ef gert er ráð fyrir því að á bilinu 13 til 19 milljónir rúmmetra af kviku þurfi að bætast við undir Svartsengi til að byggja upp nægan þrýsting til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi, benda ný líkön benda til þess að mjög miklar líkur eru á því að það eigi sér stað á næstu þremur vikum**

    – **Hættumat uppfært sem gildir til 26. júlí, að öllu óbreyttu**

    —-

    Kvikusöfnun undir Svartsengi hefur haldist nokkuð stöðug síðustu vikur. Líkanreikningar áætla að um 13 milljónir rúmmetrar af kviku hafi bæst við í kvikuhólfið undir Svartsengi frá því að kvika hljóp þaðan síðast í Sundhnúksgígaröðina og eldgosið 29. maí hófst. Í dag er magn kviku sem bæst hefur við komið að lægri mörkum þess magns kviku sem talið er þurfa að bætast við til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi. Efri mörkin liggja í kringum 19 milljónir rúmmetra af kviku.

    Ef gert er ráð fyrir því að á bilinu 13 til 19 milljónir rúmmetra af kviku þurfi að bætast við undir Svartsengi til að byggja upp nægan þrýsting til að koma af stað nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi, benda ný líkön benda til þess að mjög miklar líkur eru á því að það eigi sér stað á næstu þremur vikum

    Áður hefur þó verið bent á að reynslan frá Kröflueldum sýnir að eftir því sem kvikuhlaupum fjölgar þarf meira magn kviku og þar með meiri þrýsting til að koma þeim af stað. Ef miðað er við að um 20 milljón rúmmetrar þurfi að safnast fyrir, líkt og sást fyrir eldgosið 29. maí, mun það magn nást á næstu þremur til fjórum vikum. Þetta er byggt á því að innstreymi kviku inn í kvikuhólfið undir Svarstengi haldist óbreytt frá því sem nú er.

    #### Uppfært hættumat

    Nýjustu greiningar á því hvernig staðsetning gosopnunar hefur þróast í síðustu eldgosum á Sundhnúksgígaröðinni benda til þess að gosvirknin færist sunnar og nær Grindavík með hverjum atburði. Með hliðsjón af þessum greiningum og ef tekið er tillit til þess að frá því í nóvember 2023 hafa jarðhræringarnar valdið umtalsverðum sprunguhreyfingum innan Grindavíkur, endurspeglar þetta hættumat auknar líkur á að hraun komi upp innan svæðis 4 – Grindavík – í næsta eldgosi.

    Uppfært hættumat fyrir svæði 4 metur þannig hættu vegna gosopnunar, hraunflæðis og gasmengunar sem „töluverða“, en hún var áður metin „nokkur“. Þetta er sambærilegt mati á þessari hættu innan svæðis 3.

    Þessar breytingar á einstaka hættum innan svæða 3 og 4 hafa á þessu stigi ekki áhrif á heildarmat á hættu innan þeirra.

    [Hættumatið](https://www.vedur.is/media/uncategorized/Haettusvaedi_VI_16juli_2024.png) gildir til 23. júlí 2024, að öllu óbreyttu

    `https://www.vedur.is/um-vi/frettir/jardhraeringar-grindavik`

Leave A Reply