>„Leyfið sem nú er veitt er aðeins til eins árs, í berhögg við beiðni Hvals um útgáfu veiðileyfis til lengri tíma og stjórnarskrárvarin atvinnuréttindi hlutaðeigandi fyrirtækis,“ segir í tilkynningunni en jafnframt er tekið fram að að mati SFS hafi Bjarkey farið gegn ráðgjöf Hafró og dregið úr þeim fjölda langreyða sem stofnunin ráðleggur veiðar á.
>SFS segir Bjarkeyju með þessu lýsa yfir vantrausti gegn sérfræðingum Hafró og stofnuninni allri.
>„Hafa ber í huga að í málinu lágu fyrir jákvæðar umsagnir Hafrannsóknastofnunar, Fiskistofu og Matvælastofnunar um útgáfu leyfis til veiða á langreyðum í samræmi við beiðni Hvals þar um. Sú staðreynd gerir ákvörðun ráðherra því enn ámælisverðari,“ segir í tilkynningunni.
1 Comment

Alvarleg spilling ef þetta er satt.